Organisti óskast

6. október 2020

Organisti óskast

Húsavíkurkirkja 6. október 2020. Listaverkið til vinstri er eftir Hallstein Sigurðsson, myndhöggvara, og heitir Ægir. Reist til minningar um látna sjómenn á Húsavík.

Fullt starf organista er laust við Húsavíkurkirkju, (60%) og Skútustaðaprestakall (20%) og Grenjaðarstaðaprestakall (20%).

Best væri að hinn nýi organisti hæfi störf sem allra fyrst. Þetta er nýtt starf og verður mótað í samráði við nýja organistann.

Umsækjendur skulu hafa kirkjutónlistarmenntun frá Tónskóla þjóðkirkjunnar eða sambærilega menntun. Námsvottorð og ferilskrá fylgi umsókninni.

Launakjör eru samkvæmt samningum við FÍH (Félags íslenskra organleikara og þjóðkirkjunnar).

Organistinn stýrir tónlistarstarfi safnaðanna. Hann spilar við helgihald kirknanna og stjórnar kirkjukórunum. Þá tekur hann þátt í safnaðarstarfi eftir því sem aðstæður leyfa.

Umsóknarfrestur um organistastarfið er til 1. nóvember 2020. Umsóknum skal skila til formanns sóknarnefndar Húsavíkurkirkju, Helgu Kristinsdóttur. Netfang hennar: hkjg5252@gmail.com eða í pósti: Helga Kristinsdóttir, Uppsalavegi 33, 640, Húsavík. Helga veitir einnig nánari upplýsingar um starfið í síma 893-2130.

hsh


  • Frétt

  • Menning

  • Safnaðarstarf

  • Samfélag

  • Samstarf

  • Sóknarnefndir

  • Starf

  • Starfsumsókn

  • Tónlist

  • Auglýsing

Addis9.jpg - mynd

Vottar vonar og réttlætis: Árlegur stjórnarfundur Lútherska heimssambandsins

23. jún. 2025
Árlegur stjórnarfundur Lútherska heimssambandsins fór fram dagana 12.–16. júní í höfuðborg Eþíópíu.
Sr. Pétur Ragnhildarson

Sr. Pétur Ragnhildarson ráðinn sóknarprestur

13. jún. 2025
...í Breiðholtsprestakalli
Dómkirkjan í Reykjavík - mynd: hsh

Prestsvígsla í Dómkirkjunni

12. jún. 2025
...sunnudaginn 15. júní