Fjársjóðir á himni

Fjársjóðir á himni

Í þessari hugvekju sem er flutt til ungmenna á fermingardegi þeirra er rætt um viskuna og ráðleggingum Salómons í Orðskviðunum miðlað. Þá er guðspjallið tengt við Óðinn til kærleikans í Fyrra Korintubréfi í því samhengi að svara spurningunni um það hvað það sé, sem er varanlegt og hvernig hægt sé að safna fjársjóðum á himni.
fullname - andlitsmynd Ægir Örn Sveinsson
08. júní 2025

Fjársjóðir á himni

Guðspjall: Matteus 6.19-34

Kæru fermingarbörn.

Mig langar til þess að óska ykkur innilega til hamingju með fallega daginn ykkar.

Á þessum tímamótum sem þið standið núna á eru framundan þau ár sem eiga eftir að móta ykkur hvað mest og þess vegna skipta ákvarðanir sem þið takið og venjur sem þið temjið ykkur núna og á næstu árum miklu máli.

Þegar ég er að ferma unglinga eins og ykkur finnst mér alltaf freistandi að hugsa um hvaða góðu ráð ég gæti mögulega gefið ykkur fyrir framtíðina ykkar.

Þá dettur mér yfirleitt fyrst í hug hversu mikilvægt það er að temja sér góð lífsgildi. Gildi eins og þau að bera virðingu fyrir sjálfum sér og öllu öðru fólki. Gildi eins og það að temja sér þakklæti frekar en tilætlunarsemi og tillitssemi frekar en sjálfselsku.

Að sýna dugnað og gera alltaf sitt besta í hverju því sem maður gerir.

Að rækta sjálfan sig og rækta gott samband við ástvini sína og að fara vel með líkamann og heilsuna.

En í rauninni þegar ég hugsa málið betur þá veit ég að ég er ekki sá besti til að gefa ykkur góð ráð. Besta ráðið sem ég get gefið ykkur er að tala oft og mikið við foreldra ykkar og hlusta á vel á þá. Guð hefur gefið ykkur foreldra sem elska ykkur vilja ekkert frekar en það að ykkur vegni vel og að þið verðið farsæl í lífinu.

Annað gott ráð sem ég vil gefa ykkur er að hlusta líka vel á kennarana ykkar sem sennilega hafa valið starfið sitt vegna þess að þeir hafa einlægan áhuga á því að hjálpa ungu fólki til þess að ná árangri í lífinu.

Eitt af sjúkdómseinkennum unglingaveikinnar sem margir smitast af einhvern tímann á þessum árum er að einangra sig frá foreldrum sínum og halda stundum að maður viti allt betur en þeir.

En það er viturlegt að reyna að standast þá freistingu og þiggja frekar góð ráð frá þeim sem þekkja mann best og vilja manni bara allt það besta.

Að spjalla oft og mikið.

Mjög líklega hafa foreldrarnir ykkar sjálf gert alls konar mistök sem þeir geta varað ykkur við að þið gerið sjálf. Það er nefnilega miklu betra þegar við erum nægilega vitur til þess að læra af mistökum annarra frekar en af okkar eigin mistökum.

Og mig langar til þess að hvetja ykkur öll til þess að vera vitur. Ykkur finnst það kannski skrýtið.

Er hægt að ákveða að vera vitur?

Ég segi já við því vegna þess að það að vera vitur hefur ekkert með greindarvísitölu að gera eða það hversu vel manni gengur í skóla.

Að vera vitur er einfaldlega það að hugsa áður en maður talar og framkvæmir og taka skynsamlegar ákvarðanir frekar en heimskulegar í bæði stóru en ekki síður í smáu eða þessu litla sem er að gerast í daglega lífinu.

Biblían hefur heilmikið að segja um viskuna og það að vera vitur og eitt af því rímar vel við það sem ég var að segja hér áðan. Salómon konungur segir í Orðskviðum sínum:

„Vitur sonur hlustar á leiðbeiningu föður síns en hinn þvermóðskufulli lætur sé í engu segjast“.

Og svo segir Salómon:

    Að óttast Drottin er upphaf þekkingar,
    afglöpum einum er í nöp við visku og tilsögn.
    Hlýddu, sonur minn, á áminningar föður þíns
    og hafnaðu ekki viðvörun móður þinnar,
    þær eru yndislegur sveigur á höfði þér
    og men um háls þinn.

Í guðspjallinu sem við fengum að heyra áðan getum við tekið á móti viturlegum orðum Jesú. Hann byrjar þar á því að segja:

    Safnið yður ekki fjársjóðum á jörðu þar sem mölur og ryð eyðir
    og þjófar brjótast inn og stela. Safnið yður heldur fjársjóðum á himni
    þar sem hvorki eyðir mölur né ryð og þjófar brjótast ekki inn og stela.

Kannski eruð þið kæru fermingarbörn að eignast ýmsa fjársjóði í dag. Þið fáið kannski fínar fermingargjafir, góða gripi, upplifun eða peninga í fermingargjöf.

Ég held að Jesús hafi ekkert á móti því að þið njótið þess sem ykkur er gefið og það er bara gott að fara vel með það, spara og vera ráðdeildarsamur.

Og í gegnum lífið eigið þið eða eignist þið alls kyns dýrmæta fjársjóði í peningalegum eignum, vinum, ástvinum, fjölskyldu, menntun, lífi og heilsu. Fyrir það getum við öll verið þakklát.

En Jesús er hér að benda okkur á það að ekkert af þessu er varanlegt. Við getum misst húsin okkar, bílana, peningana, þá sem okkur þykir vænt um, heilsuna okkar og jafnvel lífið sjálft á bara augnabliki.

Til þess að eiga eitthvað varanlegt þurfum við að eiga fjársjóð á himnum. Páll postuli segir okkur í frægu ljóði sínu í Fyrra Korintubréfi um kærleikann, að á meðan flest annað líður undir lok þá er þrennt sem varir. Það eru trú, von og kærleikur.

Trú á Guð, Von á Guð og Kærleikur til Guðs sem kemur líka fram í því að við elskum náunga okkar eins og okkur sjálf. Þetta er það sem varir – Þetta eru fjársjóðir á himnum.

Og mig langar hér í dag að hvetja ykkur í dag til þess að geyma vel og safna þessum himnesku fjársjóðum.

Guð gaf ykkur trúna sem gjöf þegar þið voruð skírð. Hann gaf ykkur í skírninni réttinn til þess að verða Guðs börn og ríkisborgararétt í Guðsríkinu.

Þið hafið öll val um það hvort þið kjósið að hlúa að þessum dýrmæta fjársjóði og að safna í hann enn frekar eða hvort þið kjósið að kasta honum frá ykkur, annað hvort beinlínis eða með afskiptaleysi og vanrækslu.

Mig langar í dag til þess að hvetja ykkur til þess að varðveita þennan dýrmæta fjársjóð, eins og þið í rauninni lofið að gera hér í dag með fermingarheitinu um að gera Jesú Krist að leiðtoga lífs ykkar.

Trúin sprettur fram af Guðs orði og þess vegna hvet ég ykkur til þess að halda áfram að koma í kirkjuna til að heyra það og að lesa það í Biblíunni sem þið kynntust í fermingarfræðslunni. Þið kunnið líka núna trúarjátninguna og bænina Faðir vor sem þið skuluð geyma í hjarta ykkar og fara sem oftast með. Þannig vex trúin ykkar og vonin og kærleikurinn á þá eftir að spretta og vaxa sjálfkrafa líka í hjarta ykkar.

Ég bið góðan Guð að gefa ykkur náð sína til þess og ég bið að hann gefi ykkur dásamlegan dag í dag.

Dýrð sé Guði, föður og syni og heilögum anda. Svo sem var í upphafi, er enn og verður um aldir alda. Amen.