Trú.is

Alveg ókeypis alheimstungumál!

Miðaldra fólk allra tíma hefur alltaf haft áhyggjur af málfari næstu kynslóða. Samt tölum við enn þetta tungumál sem tengir okkur saman og mótar okkur hvar sem við erum og hvert sem við förum. Við skulum hjálpast að við að miðla fjölbreyttum orðaforða til nýrra íbúa og nýrra kynslóða, gefa af okkur í samskiptum við öll þau sem á vegi okkar verða og muna að brosið er alveg ókeypis alheimstungumál.
Pistill

Veldu lífið

Mikilvægasta spurningin er alltaf þessi. Erum við að velja lífið með þeim lögum sem við setjum okkur; þeim ramma sem bæði verndar okkur og hemur. Velja lífið með því að sýna okkur mennsk með hjarta af holdi en ekki steinhjarta.
Predikun

Ert þú bænasvar?

Því við erum öll samtengd – og oftar en ekki erum við bænasvar Guðs inn í aðstæður annarra. Hversu oft hef ég ekki misst af því að gera öðrum gott, eitthvað sem ég hefði haft tök á að gera, en skorti hugrekki eða hugmyndaflug eða tíma? Við þörfnumst hvers annars. Við getum verið samferðafólki okkar bænasvar Guðs.
Predikun

Ljósastikan

Við getum lagt okkur fram um að auka á ljósmagnið með bænum okkar, til að myrkrið hopi
Pistill

Heimur skorts eða gnægða

Hin kristna sýn á heiminn er sú að heimurinn sé góð sköpun kærleiksríks Guðs, sem elskar alla menn. Á þeim grunni eru allir menn elskaðir og jafnir. Á þeim grunni ber okkur að lifa. Á þeim grunni ber okkur að lifa, svo aðrir fái einnig að lifa.
Pistill

Fjársjóðir á himni

Í þessari hugvekju sem er flutt til ungmenna á fermingardegi þeirra er rætt um viskuna og ráðleggingum Salómons í Orðskviðunum miðlað. Þá er guðspjallið tengt við Óðinn til kærleikans í Fyrra Korintubréfi í því samhengi að svara spurningunni um það hvað það sé, sem er varanlegt og hvernig hægt sé að safna fjársjóðum á himni.
Predikun

Sumarbarnið

Við greinum þetta í margvíslegri mynd í umræðu daganna sem virðist ætla að verða æ hörkulegri eftir því sem fram líða stundir. Á Austurvelli mætti fólk með blaktandi fána og hatrammar yfirlýsingar gegn aðkomufólki sem hingað leitar að skjóli og nýjum tækifærum. Krossinn á þjóðfánanum fellur illa að þeirri afstöðu. Hann er þvert á móti yfirlýsing um sigur hins hrjáða og hrakta og vonina. Hann er yfirlýsing um máttinn sem birtist okkur í umhyggjusömu fólki og gestrisnu.
Predikun

Diversity and the God of Trinity/Fjölbreytni og Guð Þrenningarinnar

We are different. That is diversity. So, we have to be very aware of this. Since each of us is accepted as we are in the church, it means everyone else should be accepted in the same way—just as they are. / Við erum ólík. Það er fjölbreytni. Svo, við verðum að vera mjög meðvituð um þetta. Þar sem hvert okkar er samþykkt eins og við erum í kirkjunni, þýðir það að allir aðrir eiga að vera samþykktir á sama hátt – nákvæmlega eins og þeir eru.
Predikun

Smáþjóðaleikar

Já, á þessum tímum þegar við hugleiðum það kraftaverk að þessi fái og smái hópur skyldi rauninni sigra heiminn fáum við tíðindi af íþróttafólkinu okkar sem etur kappi við fámennustu þjóðir heims. Ætli Smáþjóðaleikarnir séu ein fjarlæg, langsótt en samt rökrétt birtingarmynd þeirrar menningar sem ellefumenningarnir kynntu heiminum? Þeir kenndu okkur að hlúa að því sem á undir högg að sækja í hörðum heimi og eru sjálfir fulltrúar þess hvernig fólk getur unnið stóra sigra ef heilagur andi er með því í liði.
Predikun

Samfylgd á jörðu sem og á himni

Jesús býður okkur samfylgd í gegnum allt hið þekkta, þ.e. það sem mætir okkur hér á jörðinni, en einnig í gegnum allt hið óþekkta, þess sem er handan mannlegrar reynslu, reynslu sem bíður okkur hugsanlega síðar. Þangað liggur einnig leið Jesú og hann býður okkur að slást með í för. Og með Jesú í för, þá þurfum við ekki að óttast, ekki heldur hið óþekkta.
Predikun

Vonarrík framtíð

Heimurinn birtir okkur stundum andhverfu þessa. Ófriður er tíður, atburðir verða sem vekja okkur ótta og jafnvel viðbjóð, þar sem mannleg illska virðist svo botnlaus, börn eru drepin og fólki vísvitandi stefnt í hættu á hungurmorði. Kannski er það þess vegna sem textar Biblíunnar miðla von.
Predikun

Fundir og mannfagnaðir

Neskirkja er torg í Vesturbænum og þar gefst kostur á að setjast niður t.d. eftir messu, á kóræfingu, foreldramorgni, í barnastarfi osfrv. osfrv., hitta mann og annan og rækta nærsamfélagið. Svoleiðis spjall hefur margsannað gildi sitt til þess að bæta einstaklinga og hópa. Maður er manns gaman, segir máltækið en samskipti okkar hvert við annað eru ekki bara ánægjuleg, þau eru lífsnauðsynleg. Við leggjum okkur fram um að fólk tengist hvert öðru, svo einmanaleikinn sá mikli vágestur okkar tíma, setji sem minnstan svip á líf þeirra sem hingað leita. Í kirkjunni iðkum við þetta jú af innlifun og sannfæringu bæði fundi og mannfagnaði.
Predikun